London Beer Competition miðar að því að viðurkenna og fagna bjór-vörumerkjum sem neytendur raunverulega vilja kaupa, hvort sem frá smásala, verslunum eða á veitingastöðum í London.
Dómararnir voru 8 talsins, Judges of the London Beer Competition (LBC) London, UK,. Hópurinn samanstóð af sérfræðingum með mikla þekkingu meðal heildsala, dreifingaraðila, viðskiptahópa, veitingastaða, hótela og ferðaiðnaðarins.
“Við erum himinlifandi yfir árangri okkar í kepninni þar sem þessi keppni horfir meira á hvað viðskiptavinurinn og aðrir kaupendur eru að leita að. Það að bjórarnir okkar fengu bæði gull og silfurverðlaun sýnir að við erum að framleiða bjór sem veitingastaðir og heildsalar vilja kaupa og einnig bjór sem hinn almenni neytandi vill kaupa og njóta.” Segir Helgi Sigurðsson annar eigandi KHB Brugghúss á Borgarfirði eystri.
“Naddi er dökki lagerbjórinn okkar og hann fékk gullverðlaun og samtals 92 stig. Td fékk hann 95 stig fyrir gæði. Gellivör er IPA bjórinn okkar og var einnig mjög nálægt gullinu og með samtals 88 stig, þar af 89 stig fyrir gæði. Einnig fengu Jólanaddi, sem er jólaútgáfa af Naddanum, og Borghildur, sem er ljósi lagerinn okkar, góða dóma og silfurverðlaun.
Við leggjum áherslu á gæðahráefni og kaupum það frá Tékklandi – frá litlu fjölskyldufyrirtæki sem búið er að vera starfandi í yfir hundrað ár. Við vitum því að gæðin eru í lagi. Vinnum einnig náið með tékkneskum bruggmeisturum með mikla reynslu og Þorsteinn Brandsson, yfirbruggmeistari KHB, hefur náð góðum tökum á faginu og er með allt á hreinu hvað þetta varðar. Allir bjórarnir okkar eru ferskvara, ógerilsneyddir og án viðbætts sykurs og án rotvarnarefna.
Það er virkilega gaman að fá svona alþjóðleg verðlaun og þau veita okkur öllum hjá KHB Brugghúsi hvatningu til að halda áfram. Þessa dagana erum við að brugga sumarbjórinn okkar, hana Snotru, sem er skemmtilegur hveitibjór með appelsínu og kóríander. Einnig vorum við á dögunum að koma með nýjan bjór sem heitir Márín. Márin er porter með kaffi og kakó og einstaklega bragðgóður.”


