Gönguferðir

Í sumar munum við bjóða upp á gönguferðir um Víknaslóðir við Borgarfjörð eystri. Leiðsögumaður er Hafþór Snjólfur Helgason
 
Gengið um Víknaslóðir við Borgarfjörð eystri
sumarið  2012. - 4. göngudagar.

Komið til Borgarfjarðar að kvöldi og gist á gistiheimilinu Blábjörgum.
Hver göngudagur er 6-7 klst og gengið um 13-18 km á dag.

1. Stórurð og undraveröld Dyrfjalla.  15.5 km 7 klst.
Ekið upp á Vatnskarð þar sem gangan hefst. Gengið eftir fjallsbrúnum
Geldingafells og utan í fjallinu Súlum inn að Stórurð sem er ein helsta og
best varðveitta náttúruperla Íslands. Stórurð liggur undir hömrum
Dyrfjalla í botni Urðardals. Þar hafa risavaxin björg borist fram með
ísaldarjöklinum og myndað ólýsanlegan ævintýraheim. Dyrfjöllin sem gnæfa
yfir Stórurð eru útverðir Austurlands í norðri og ein allra svipmestu
fjöll á landinu. Gengið til baka niður Urðardal og ekið til Borgarfjarðar
þegar komið er aftur að akveginum.

2. Brúnavíkurhringur.  15 km 7 klst
Brúnavík er grösug og fögur vík sem liggur við Borgarfjörð en þar var búið
allt til ársins 1944. Víkin er einstaklega litfögur og þá sérstaklega
fjaran sem á sem er alveg einstök. Gengið er til Brúnavíkur frá
Kolbeinsfjöru í Borgarfirði yfir Brúnavíkurskarð (350m) en það er gamla
leið Brúnvíkinga  til Borgarfjarðar.  Frá Brúnavíkursandi er gengið inn dalinn
og til Borgarfjarðar aftur um Hofstrandarskarð.  Þessi leið er ein
sú allra vinsælasta á Víknaslóðum.

3. Stapavík -  Njarðvík.  16 km 6-7 klst
Ekið að Unaósi við Hérðasflóa og þaðan gengið út með Selfljóti að Stapavík
sem á sér merkilega sögu en þar var eitt sinn uppskipunarhöfn Héraðsbúa.
Höfin er staðsett við hrikalega sjávarhamra og aðstæður til lendingar
gríðarlega erfiðar. Gömul mannvistarmannvirki skoðuð og gengið niður
víkina að sjó. Frá Stapavík er gengið yfir Gönguskörð til Njarðvíkur en sú
leið var alfaraleiðin til Borgarfjarðar áður en akvegur var lagður um
Vatnsskarð um miðja 20. Öld.  Ekið frá Njarðvík til Borgarfjarðar.

4. Hvítserkur og nágrennni. 17 km 7 klst
Ekið á Víknaheiði sem liggur milli Borgarfjarðar og Breiðuvíkur. Þaðan er
gengið yfir Eyðidalsvarp og til Herjólfsvíkur. Á leiðinni er einstakt
útsýni yfir Breiðuvík og Kjólsvík. Herjólfsvíkin er lítil og brött. Hún er
samt vel gróin og þar er að finna mikið af sérkennilegum jarðmyndunum.
Gengið er inn dalinn og yfir Herjólfsvíkurvarp til Húsavíkur. Í Húsavík er
gengið í hlíðum Hvítserks sem er eitt sérkennilegasta fjall íslands, þekkt
fyrir bleika og græna liti og tröllvaxna basaltbergganga sem sundurskera
fjallhlíðarnar og gefa því einstakt útlit.

Gist er á Borgarfirði öll kvöld ferðarinnar á gistiheimilinu Blábjörgum.
 
Nánari upplýsingar um göngusvæðið Víknaslóðir má finna hér.
 
 Blábjörg ehf, kt:710506-0430, vsk.nr:91540